1. Ef þú hefur árangurslaust farið í megrun. 2. Ef þú borðar þegar þú vilt ekki borða. 3. Ef þú borðar til að takast á við stress eða erfiða líðan. 4. Ef þú getur ekki hætt að borða sykur og ýmsan sterkjuríkan mat, hversu mikið sem þú reynir. 5. Ef þér finnst þú hafir reynt allt, án árangurs.... þá getur verið að við getum hjálpað þér! GSA er félagsskapur fólks sem hefur fengið lausn á vandamálum sínum tengdum mat. GSA samtökin byggja á Gráu síðunni og 12 spora kerfi AA samtakanna til að ná og viðhalda svokölluðu fráhaldi frá vanda sínum.
Átt þú í vanda með mat og telur að þú gætir verið haldin/n matarfíkn og/eða átröskun? |


