miðvikudagur 8 september 09 2010

Hvernig byrja ég?


Við erum mjög ánægð að þú skulir hafa áhuga á að slást í hóp með okkur í GSA og öðlast frelsi frá matarþráhyggju með fráhaldi af Gráu síðunni.
Fyrsta skrefið er að finna matarsponsor (trúnaðaraðila).

Matarsponsor:

Fullgildur GSA matarsponsor er félagi sem hefur verið í a.m.k. 90 daga samfelldu fráhaldi samkvæmt Gráu síðunni.
Matarsponsorinn þinn mun útskýra hvernig við vigtum og mælum, án undantekninga, af Gráu síðunni og mun afhenda þér þitt eintak þegar þú ert tilbúin/n að hefjast handa.

Gráa síðan – mataráætlun:

Gráa síðan er aðeins afhent af matarsponsor, þ.e. við dreifum henni ekki til þeirra sem ekki eru tilbúnir til að vinna með matarsponsor og fara í fráhald eins og við skilgreinum það.
Vinsamlegast sendið ekki tölvupóst til vefstjóra til þess eins að óska eftir eintaki af Gráu síðunni.

Fundir og matarsponsorar:

Best er að mæta á fundi og fá þar matarsponsor. Ef þú getur ekki mætt á fundi t.d. vegna staðsetningar, getur þú haft samband við okkur og óskað eftir matarsponsor gsa@gsa.is
Hægt er að sjá fundartíma undir fundarskrá. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi það að hefjast handa getur þú haft samband við okkur á gsa@gsa.is

Gangi þér vel!