Algengar spurningar: - Hvað er fráhald samkvæmt Gráu síðunni?
Fráhald af Gráu síðunni er skilgreint sem: Þrjár vigtaðar og mældar máltíðir af Gráu síðunni á dag, eins og þær eru útskýrðar af fullgildum GSA matarsponsor (trúnaðaraðila); Tilkynntar til matarsponsors, áður en við borðum. Án undantekninga, þ.e. það eru engar kringumstæður þar sem við vigtum ekki og mælum matinn okkar. Ekkert er borðað eða drukkið á milli þessara þriggja máltíða nema svart kaffi, te, sykurlaust gos eða sykurlaust tyggjó.
- Hvar fæ ég eintak af Gráu síðunni?
Gráa síðan er aðeins afhent þeim sem eru viljugir að vinna með matarsponsor, til að ná fráhaldi eins og við skilgreinum það. Gráa síðan er ekki megrunarplan, hún er leiðarvísir að nýjum lífsstíl.
- Hvað er fullgildur matarsponsor í GSA?
Fullgildur matarsponsor í GSA er skilgreindur sem: GSA-félagi sem hefur minnst 90 daga samfellt fráhald, eins og skýrt er hér að ofan og hefur einnig fullgildan matarsponsor í GSA.
- Hvernig fæ ég matarsponsor?
Hægt er að fá matarsponsor á eftirfarandi hátt: Á fundum. Ef þú kemst ekki á fundi getur þú sent tölvupóst á gsa@gsa.is. Þá færð þú uppgefið tölvupóstfang eða símanúmer hjá matarsponsor sem þú hefur síðan samband við. Samskipti ykkar fara þá fram í gegnum síma.
- Hvað er GSA fundur?
GSA fundur er skilgreindur sem: Hópur af hömlulausum ofætum sem hittast til að deila reynslu sinni, styrk og vonum í fráhaldi sínu samkvæmt Gráu síðunni. Allir sem leiða fundi og þeir sem hafa verið í fráhaldi í a.m.k. 90 daga eru fullgildir matarsponsorar. Gráa síðan er aðeins afhent af fullgildum matarsponsor og er ekki afhent á annan hátt. Aðeins er stuðst við efni GSA og AA-samtakanna á fundum.
- Hvar og hvenær eru fundir?
- Hvernig fara fundir fram?
Sjá fundir
- Hvað er Gráa netið?
Gráa netið er spjallhópur á netinu fyrir þá sem eru í fráhaldi samkvæmt Gráu síðunni.
- Hvernig skrái ég mig?
Reglur fyrir þátttöku á erlenda spjallhópinn eru inn á GreySheeters en ráðgert er að stofna íslenskan spjallhóp hér.
|
|