miðvikudagur 8 september 09 2010

12 reynsluspor GSA samtakanna:

1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn mat og að okkur var orðið um megn að stjórna okkar lífi.

2. Við fórum að trúa að æðri máttur gæti gert okkur heilbrigð að nýju.

3. Við tókum þá ákvörðun að leita Guðs og láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu hans,samkvæmt skilningi okkar á honum.

4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðisleg reikniskil í lífi okkar.

5. Við játuðum fyrir Guði, sjálfum okkur og trúnaðarmanni yfirsjónir okkar.

6. Við vorum þess albúin að láta Guð lækna allar okkar skapgerðarveilur.

7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.

8. Við skráðum misgjörðir okkar gegn náunganum og vorum fús til að bæta fyrir þær.

9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, svo framarlega sem það særði engan.

10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar útaf bar, viðurkenndum við yfirsjónir okkar undanbragðalaust.

11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um skilning á því sem okkur var fyrir bestu og mátt til að framkvæma það.

12. Við fundum, að sá árangur, sem náðist með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum ofætum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.