miðvikudagur 8 september 09 2010

12 erfðavenjur GSA samtakanna:

1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu GSA samtakanna kominn.

2. Deildir GSA samtakanna hafa aðeins einn leiðtoga: algóðan Guð, eins og við skynjum hann. Fyrirsvarsmenn okkar eru aðeins þjónar sem við treystum, ekki stjórnendur.

3. Til þess að gerast GSA félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta hömlulausu ofáti.

4. Sérhver GSA deild ætti að vera sjálfráða, nema í málefnum sem snerta aðrar deildir eða samtökin í heild.

5. Hver deild á sér aðeins eitt meginmarkmið; að flytja ofætum sem enn þjást boðskap samtakanna.

6. GSA deild ætti aldrei að standa að, leggja fé til eða lána nafn GSA samtakanna neinum skyldum eða óskyldum samtökum, hverju nafni sem þau nefnast, til þess að fjármunir, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki hinum upprunalega tilgangi.

7. Sérhver GSA deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utaðaðkomandi fjárhagsaðstoð.

8. Starfandi GSA félagar eru áhugamenn sem taka ekki laun fyrir störf sín, en þjónustumiðstöðvar okkar mega nota launaða starfskrafta.

9. GSA samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja, en við getum myndað ráð og nefndir, sem ábyrgar eru gagnvart þeim sem þær þjóna.

10. GSA samtökin taka ekki afstöðu til opinberra mála; nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.

11. Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri og nafnleyndar skyldum við ætíð gæta á vettvangi fjölmiðla.

12. Nafnleyndin er hinn andlegi grundvöllur erfðavenja okkar og minni okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.